Það hlaut að koma að því!

Var það ekki bara tímaspursmál hvenær þessi mótmæli myndu minna okkur á gömlu góðu Nato mótmælin? Ég býð spenntur eftir myndbrotum frá nóttinni .. enda kominn tími til að uppfæra hið fræga myndbrot Nato mótmælanna :)
mbl.is Táragasi beitt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef eina, litla, sæta, aumingjalega fyrirspurn!

Saving Iceland, viljið þið drulla ykkur til þess að hætta að trufla mig þegar ég borða matinn minn í Kringlunni!  Viljið þið hunskast til þess að henda málningu á ykkar eigið hús, búa síðan til nýtt hús úr skyri, búa þar í eina viku, henda málningu á það, biðja 40 manns um að trufla ykkur þegar þið borðið, keyrið og stundið það sem þið mynduð kalla óvenjulega iðju og borða síðan skyr-málningar húsið ykkar!

Hvað græði ég á þessu?  Jú, að sjá aðila sem valda mér óþægindum, verða fyrir svipuðum óþægindum og ég þarf að líða vegna þeirrar sérvisku sem þetta lið hefur á að byggja, veitir mér huggun.

So please, painting Iceland, go duck your selfs! (takið eftir, ég sagði ekki fuck, heldur duck!) 


mbl.is Áberandi mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta skotárásin í Reykjavík í langan tíma!

Þetta er hræðilegt!  Alveg hreint hræðilegt!

En ég veit hver gerði þetta; Helgi Brynjarsson.  Muniði?  Hann drap hund um daginn!  Hann gerði þetta pottþétt!!

NOTA BENE: Það sem skrifað er hér fyrir ofan er uppspuni og einvörðungu sagt í gríni.  Ég er ekki að hóta Helga, segja að þetta hafi verið hann eða reyna að koma múgsefjun og æsingi í gang.  Þetta er sagt í gríni og einungis í gríni.  Takið eftir að um kaldhæðni er að ræða, KALDHÆÐNI!  Ég veit ekki hver gerði þetta og gruna Helga Brynjarsson engan veginn um þetta.  Þetta er grín!

(Ég á pottþétt eftir að fá reið komment út á þetta blog...ég bíð bara eftir því...) 


mbl.is Maðurinn sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttaflutningur eftir fréttaslys - til skammar!

Á meðan á fréttaflutningi stóð vegna eltingaleik lögreglu og rugludallar rákust 2 fréttaþyrlur á hvor aðra með þeim afleiðingum að 4 létust.

Leyfið mér að leika eftir fyrir ykkur fréttaflutning fréttastofunnar KTVK sem átti eina þyrluna og 2 starfsmenn sem dóu rétt í þessu:

"Þetta var nú hræðilegt slys!  Já, en það þýðir ekki að gráta dauðan hest.  Við erum með myndir af mönnunum sem dóu beint af staðnum.  Váá, sjáiði hausinn á þessum?  Neih, hann sést varla vegna þess að hann lenti í þyrluslysi!"

Það er hreinn og beinn horbjóður að fylgjast með fréttaflutningi þessarar fréttastofu.  Hreinn og beinn horbjóður!  Þetta fólk hefur nákvæmlega enga siðferðiskennd og enga þóknun á því að syrgja ný-yfirgefna fréttamenn en gætu hugsanlega grætt á því að flytja fréttir um málið og bíða þessvegna ekkert með það.  Og ekki nóg með að þetta sé bara hinn venjulegi fréttaflutningur heldur hafa allir sem þau ræða við sagt "Ég vorkenni ykkur mjög svo, þetta hlítur að vera hræðilegt!" og það eina sem að þau segja er "Já, en þú varst á staðnum ekki satt?  Geturu sagt okkur hvort að þú sást einhverja hausa fljúga?" !!

Það kom einn maður sem hafði unnið með þessum mönnum í hátt í 12 ár.  Þeir dóu fyrir u.þ.b. 6 klukkutímum síðan þegar ég skrifa þetta og maðurinn talar um þá eins og þeir hafi dáið í fyrra!

Það er eitthvað sem mér finnst einfaldlega ekki rétt við þetta, en til þess að feta í fótspor þessa horbjóðar og viðurstyggðar ætla ég að benda hér á live feed þar sem verið er að fjalla um slysið á KTVK.  Hana má finna hér!

Einnig er hér að finna myndband af síðustu augnablikum fréttamanns sem öllum á fréttastofunni hans er sama um

Hér fjallar CNN um málið

Hér er ABC með fréttir um málið, en ABC átti einmitt aðra þyrluna...og já, einhverja 2 karla sem voru í henni

Kannski, og hugsanlega mjög líklega, er þetta blog fyllt af hroka og pirring.  Hugsanlega spilar þreyta inní þetta líka.  En mér bíður við því að hlusta á fólk með siðferðiskennd á við híenur ræða um menn sem létu lífið fyrir innan við 1/4 úr sólarhring eins og þeir höfðu bara verið 2 karlar í þyrlu sem pissuðu óvart á sig!  Síðan getur þetta fólk talað um Paris Hilton þetta og Paris Hilton hitt, eins og hún sé drottning Kanans!

Ojj bara!


mbl.is Sjónvarpsþyrlur rákust á og hröpuðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saving Iceland hefur fengið nýjan titil...

...Saving Iceland, with paint!

"Segir í tilkynningu frá Saving Iceland að aðgerðirnar séu svar við harkalegum aðgerðum lögreglu gagnvart liðsmönnum samtakanna í Reykjavík um síðustu helgi."

"Harkalega aðgerðir lögreglu" er ekki rétt orðasamsetning.  "Lögreglu að sinna starfi sínu" þykir mér réttara.  Það var ekkert athugavert við aðgerðir lögreglu þennan dag.  Ef eitthvað á að kalla athugavert, þá var það múgæsingur, útköll og hróp liðsmanna Saving Iceland og sí endurtekin lagabrot þeirra sem telja sig bjarga Íslandi með málningu og ófriði.

"friðsamlega liðsmenn samtakanna" - Já, þangað til að yfirvöld byrjuðu að sinna vinnu sinni og þá var ekki aftur snúið!

"Segjast þeir hafa myndbönd undir höndum sem sýni lögreglu ráðast á liðsmenn Saving Iceland." - Ef umrætt myndband er það sama og finna má á YouTube, þá hlakkar verulega í mér að hlæja og benda næst þegar Saving Iceland mótmæla.

"Fimm friðsamir mótmælendur hafi verið færður í fangaklefa og einn þeirra sé með brotin rifbein eftir átök við lögreglu."  Bíddu, bíddu, bíddu!  Leyfið mér að vitna í Snorra Pál Jónsson, sem sagði mér til synda minna og uppljómaði mig um svo margt sem ég ekki vissi hér á bloggi mínu í þessari viku: "Lögreglan hafði engin samskipti við bílstjórann fyrr en hún handtók hann, hún bað hann aldrei að slökkva á tónlistinni. Þegar hún síðan handtók hann fór það fram á mjög ofbeldisfullan hátt, þrátt fyrir sífellar ábendingar um að hann væri rifbeinsbrotinn. Hann streittist ekki á móti, en þetta segja fjölmiðlar þér heldur ekki."  Ha?!  Leyfið mér að útskýra þetta fyrir ykkur;

- Saving Iceland gefa út tilkynningu sem segir "Einn þeirra sé með brotin rifbein eftir átök við lögreglu."
- Snorri Páll Jónsson segir  hinsvegar "þrátt fyrir sífellar ábendingar um að hann væri rifbeinsbrotinn."

Hverjum á maður að trúa hérna?  Snorra Páli, sem var einn af þeim sem stóð fyrir þessum lagabrotum, eða fréttatilkynningu frá sömu samtökum og telja sig ætla að "bjarga Íslandi" með málningu?  Er ekki það "að vera rifbeinsbrotinn" og "að vera með brotin rifbein" það sama?

Þetta ýtir enn fremur undir þá einföldu staðreynd að Saving Iceland er slappasta afsökun fyrir náttúruverndar samtök sem fyrirfinnast á þessari annars ágætu jörðu!

Það hlakkar í mér að sjá hvaða hugsunarlausu aðgerðir þau taka fyrir næst.


mbl.is Málningu slett á ræðisskrifstofu Íslands í Edinborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðalagabrotum fjölgar

Ég ætla mér að líta á björtu hliðarnar og segja; Er ekki hægt að segja að lögreglan sé hugsanlega að standa sig betur þetta árið heldur en síðustu ár í því að góma ökuníðinga og afbrotamenn í umferðinni?

Ekki getur það verið lögreglu embættinu að kenna að lög landsins hljómi ekki uppá þyngri refsingar þessa dagana, hún fer bara eftir þeim og biður aðra um að gera slíkt hið sama.  Persónulega finnst mér að hækka megi sektir enn fremur en nú þegar hefur verið gert og taka til frekari ráða.  Eins og hvað?  Jú, af hverju er ekki hægt að setja í "löggubókina" þá reglu að ef aðili brýtur á sér 3svar sinnum að þá sé bifreið hans tekin og sett í geymslu í 3 mánuði.  Það tæki örugglega ekki langan tíma fyrir "ný-bílprófara" landsins að átta sig á því að hugsanlega er ofhraða aksturinn ekki bílsins virði!

Bara mín skoðun... 


mbl.is Umferðarlagabrotum fjölgar; mikil aukning á hraðakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælendur Saving Iceland í ruglinu!

Skoðið þetta fyrst:  Myndband af Vísir.is

Fyrst talar, að ég held, forsprakki samtakana, Sigurður Harðarson, sem talar eins og ég tala þegar ég er búinn með 6 til 8 bjóra.  Síðan kemur einhver ónafngreindur, erlendur aðili sem talar eins og ég myndi tala eftir 6 til 8 grömm af hassi.  Hann þylur upp einhverja bölvaða þvælu eins og: "Mér finnst það dapurlegt að viðbrögðin séu ætið svo neikvæð að við erum útmáluð sem hryðjuverkamenn eða eitthvað álíka."  Hver hefur útmálað ykkur sem hryðjuverkamenn annar en þú sjálfur?  Lögreglan skiptir sér af ykkur vegna þess að þið eruð að brjóta lög.  Þið eruð beðin um að slökkva á græjunum en neitið því, þið eruð beðin um að tefja ekki umferðina sem mig minnir að sé ólöglegt, þið streitist á móti lögreglu og hafið afskipti af starfi lögreglunnar sem er með öllu óheimilt!  Síðan farið þið í sjónvarpið, annað hvort drukknir eða útúr hassaðir (án þess þó að ég hafi sannanir fyrir því) og segið að þið séuð dæmdir hryðjuverkamenn?!  Hvaða bölvaða vitleysa er þetta eiginlega?

Síðan tala báðir þessir aðilar um að þeir séu náttúruverndarsinnar og vilja vernda náttúru Íslands en þegar litið er á tjaldsvæði þeirra þá er það allt í drasli sem auðveldlega getur fokið burt og skaðað náttúru Íslands.  Væri ekki best að líta í eigin barm, hætta að tala við sjónvarpið fullur og skipuleggja mótmælagöngur eins og mótmælagöngur eiga að ganga fyrir sig!  Ef að þið gerið það, þá treystið mér, lögreglan á ekki eftir að líta við ykkur!

Nú vill ég að þið kíkið á þetta: Myndband af YouTube

Þarna má sjá Saving Iceland, Rave Against The Machine, fyrstu 3 mínúturnar haga sér eins og vitleysingar niðri í bæ.  Ekkert sem ég hef á móti því.  Auðvitað má fólk haga sér eins og því líkar og auðvitað má fólk tjá skoðanir sínar.  En landið er byggt á lögum!  Það þýðir ekkert að láta eins og fífl og brjóta lög á sama tíma.  Eins og Fóstbræður sögðu á sínum tíma; "Það er allt í lagi að vera með fíflagang, svo lengi sem það fer ekki út í sprell!"

- Skoðið fyrir mig mínútu 03:25!  Þar má sjá lögreglumann tjá einhverjum frá Saving Iceland að ef að til eru myndbrot af lögreglumanni að lemja einhvern, að þá megi auðvitað senda það myndbrot til lögreglu og kæra.  Með þessu er sá aðili sem klippti saman þetta myndband að miðla því til þeirra sem skoða það að á næstu mínútum munum við sjá svokallað "Police Brutality" eða eins og stendur í lýsingunni á myndbandinu; "with severe police brutality by Iceladic standards."

Ókei, bíddu bíddu, stoppið upptökuna!!  "By Icelandic standards" ?!?!  Hvaða andskotans þöngulhausar eru þetta eiginlega?  Er það staðlað af íslenskri lögreglu að beita ofbeldi þegar engin þörf er á?  Ekki man ég eftir nema hugsanlega einu tilviki þar sem lögreglan notaði ofbeldi í stöðu sem ofbeldi þurfti ekki að nota og þið eruð að ásaka íslenska lögreglu og segið að þetta sé einhver hefð á Íslandi!  Skammisti ykkar!  Ég er búinn að fá mig full saddan af þessari bölvuðu "Ég þoli ekki yfirvöldin / reynum að skapa múgsefjun" tilgerð!  Finnið ykkur eitthvað annað að gera, í guðanna bænum!

- Ef að þið horfið síðan áfram að mínútu 03:50; Þar má sjá konu með hvítan haus reyna að komast fram hjá lögreglu og inní bíl sem lögreglan var að reyna að tæma.  Með þessu er hún að skipta sér af störfum lögreglu og er það bannað með lögum.  Sá aðili sem setur saman þetta mynband hægir þarna á myndbrotinu og lætur það líta út eins og lögreglumaðurinn hafi slegið til konunnar þegar að hann var greinilega bara fljótur til að grípa hana og ýta henni burt.  Hann kýldi hana ekki, það sér hver sá sem ekki er vel í því eða búinn að reykja aðeins of mikið grasi (sbr. örugglega meirihluti meðlima þessara samtaka).

- Frá mínútu 04:15 og til endaloka myndbandsins má sjá strák með rauðan hjálm skipta sér af starfi lögreglu.  Það má sjá sama strák grípa í lögreglu.  Það eina sem lögreglan gerir er að taka strákinn afsíðis og segja honum að hætta þessu en hann gegnir ekki.  Það má sjá fólk öskra "The whole world is watching" á sama tíma og þau skipta sér af störfum lögreglu og hleypa lögreglu ekki að.  Það má sjá sama aðila og var á hassi í fyrra myndbandinu á jörðinni með lögreglumann ofaná sér eftir að hafa skipt sér af lögreglustörfum, lamið til lögreglu og látið öllu illum látum.  Þegar að þessi aðili er tekinn byrjar einhver pussa að öskra eins og verið sé að nauðga barninu hennar fyrir framan hana.  Það öskrar einhver "Police brutality" og aðrir kalla lögregluna fávita eða þroskahefta.  Einn aðilinn í bakgrunn, sem er greinilega aðeins of uppheftur af múgæsingnum, öskrar "Þetta er líkamsárás" sem greinilega er ekki málið.

Síðan endar þetta myndband þar sem sjá má lögreglu brjóta rúðuna í bílnum og slökkva á honum eftir ítrekaðar tilraunir til þess að fá samtökin til að slökkva á græjunum.

Það sem ég vill að lokum segja er einfaldlega þetta.  Hættið þessu bölvaða rugli!  Ég er kominn með svo mikið ógeð af svona lögreglu ásökunum sem eiga engan veginn rétt á sér að það hálfa væri nóg!  Finnið ykkur eitthvað annað að gera með ykkar dýrmæta líf eða hættið að mótmæla ólöglega!


mbl.is Mótmælendur Saving Iceland loka Snorrabraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sif í sjóinn

Þetta var svo sannarlega lán í óláni.  Ég hlakka þó til að fá að heyra hvers vegna þetta gerðist því aldrei hefur verið talað um slæmt veður eða neitt því um líkt.  Þyrlan átti bara að hafa misst afl og ekki tókst að blása út flothöldum sem áttu að hindra það að þyrlan færi í kafi.

En guði sé lof að enginn meiddist!


mbl.is Unnið að því að koma TF-Sif í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prufa á Blog.is hjá Morgunblaðinu

Ég hef ákveðið að prófa þetta ágæta kerfi hjá Morgunblaðinu.  Ég hef haft gaman af því að lesa skrif notanda Blog.is og hef áhuga á að skrifa sjálfur við þær fréttir sem ég tel mig hafa eitthvað til málana að leggja.

Einnig held ég uppi minni eigin bloggsíðu á slóðinni maggi.trymbill.is!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband